EKKI LÁTA PLATA ÞIG!
Djúpfalsanir hljóma sannfærandi og líta raunverulega út. Þjálfum starfsfólkið okkar í að þekkja merkin, áður en svikarar prófa sig áfram á vinnustaðnum þínum.
Bóka kynningu fyrir vinnustaðinnTraust getur verið veikleiki í stafrænum heimi
Það hefur aldrei verið auðveldara að falsa raunveruleikann. Í dag er hægt að nota gervigreind til að búa til myndir, myndbönd, raddir og svo mætti lengi telja. Svikarar nýta þessa tækni til að blekkja einstaklinga, stela upplýsingum og framkvæma fjársvik, hraðar og meira sannfærandi en nokkru sinni fyrr.
Spurningin er ekki lengur hvort fyrirtækið þitt verði fyrir svikatilraun, heldur hvort starfsfólkið þekki viðvörunarmerkin þegar þau koma fram.
Ég sá myndbandið, þetta gerðist!
Djúpfölsun (e. deepfake) er mynd, hljóð eða myndband sem er búið til eða breytt með hjálp gervigreindar. Djúpfalsanir geta látið einstaklinga segja eða gera hluti sem gerðust aldrei.
Áður mátti afhjúpa djúpfölsun með lélegri klónun eða klaufalegri rödd. Það er ekki lengur öruggt merki. Þróun gervigreindar hefur gert það að verkum að djúpfalsanir eru að verða auðveldari í framleiðslu og erfiðari í greiningu.
Þessi þróun gerir það sífellt erfiðara að treysta því sem við sjáum, en getum við ennþá treyst röddum?

Mamma hringdi og sagðist vera í veseni
Vishing, eða raddveiðar (e. voice phishing), er svikaaðferð þar sem svikarar hringja eða senda talskilaboð í þeim tilgangi að blekkja viðtakandann. Þeir geta þóst vera samstarfsmaður, yfirmaður eða nákominn ættingi og notað gervigreind til að herma eftir rödd viðkomandi með svo mikilli nákvæmni að erfitt getur verið að greina á milli raunverulegrar og falsaðrar raddar.
Markmiðið er alltaf það sama: að fá þig til að bregðast hratt við, deila viðkvæmum upplýsingum eða samþykkja greiðslu áður en þú nærð að staldra við og hugsa málið.

Hver eru merkin?
Þrátt fyrir að djúpfalsanir eru stöðugt að verða meira sannfærandi eru nokkur atriði sem ættu að vekja athygli, til dæmis:
- Óvænt símtöl þar sem beðið er um aðgerðir strax
- Beðnir um greiðslur eða viðkvæmar upplýsingar
- Skilaboð sem skapa tímapressu eða ótta
- Óvenjulegar beiðnir frá stjórnendum, samstarfsfólki eða nákomnum aðilum
Ef minnsti grunur vaknar er alltaf betra að staðfesta beiðnina í gegnum annan samskiptamáta, til að vera alveg viss!
Er fyrirtækið þitt tilbúið fyrir nýjar tegundir svika?
Starfsfólkið er fyrsta varnarlínan
Um það bil 90% af öllum árásum fela í sér mannlega þáttinn!
Ekki láta plata þig
Traust getur verið veikleiki í stafrænum heimi. Það hefur aldrei verið auðveldara að falsa raunveruleikann.
Bókaðu kynningu fyrir þinn vinnustað
Netógnir þróast hratt og starfsfólkið þarf að þróast með þeim.