Vertu með
Viltu leggja þitt af mörkum til að búa til öruggara stafrænt samfélag? Langar þig að vera hluti af öflugu samfélagi fremstu heiðarlegu hakkara landsins, dýpka þekkingu þína og fá verðlaun fyrir að finna öryggisveikleika? Villuveiðigátt Defend Iceland opnar fjölda tækifæra fyrir metnaðarfulla heiðarlega hakkara.
Sækja umAf hverju að vera með?
Öruggara samfélag
Þú getur nýtt hæfileika þína til að finna öryggisveikleika í ólíkum kerfum og um leið búið til öruggara stafrænt samfélag.
Peningaverðlaun
Þú getur fengið greitt allt að 500.000 kr. fyrir öryggisveikleika sem þú finnur.
Verðmæt símenntun
Þú lærir nýjar og framsæknar aðferðir til að auka netöryggi.
Samfélag heiðarlegra hakkara
Þú verður hluti af öflugum hópi hakkara, átt í samskiptum við þá á Discord rás Defend Iceland og keppir við þá um hver finnur flesta öryggisveikleika.
Sæktu um núna!
- Heiðarlegur hakkari hjá Defend Iceland
Verðlaunafé
Heiðarlegu hökkurunum er greitt fyrir öryggisveikleika sem þeir finna og greiðslur hækka í takt við alvarleika veikleikanna.
Viðurkenningar
Framúrskarandi hakkarar ná forskoti í keppni við aðra sérfræðinga.
Vertu með
Sæktu um og leggðu þitt af mörkum til að búa til öruggara stafrænt samfélag.