Sjálfvirkur árásarhermir
Finndu veikleikana áður en aðrir gera það - láttu gervigreindarhakkarann prófa kerfin þín
Bóka fundFyrsti gervigreindarhakkari Íslands
Gervigreindin finnur það augljósa. Manneskjan finnur það óvænta.
Gervigreindarhakkarinn er sjálfvirkur, heiðarlegur hakkari sem sannreynir veikleika í þínum kerfum með því að herma eftir raunverulegum árásum. Hann fylgist með þínum kerfum allan sólarhringinn, allt árið í kring, finnur veikleika hratt og hjálpar þér að bregðast við áður en þeir eru nýttir af meinfýsum aðilum.
Ólíkt hefðbundnum skönnum sem leita að þekktum veikleikum, hermir gervigreindarhakkarinn eftir hegðun árásaraðila og getur sett saman flókna veikleikaröð (e. attack chain). Hann dregur úr hávaða og undirbýr þig fyrir markvissari öryggisprófanir og hlítingarskýrslur þegar þú þarft á þeim að halda.
Engin uppsetning. Engin flókin verkfæri. Þú sérð strax hvað skiptir máli.
Hvað finnur gervigreindarhakkarinn hjá þér?

Hannað fyrir þarfir markaðarins
Fyrir öryggis- og tæknistjóra
- Finnur veikleika áður en þeir verða að atvikum.
- Dregur úr hávaða og undirbýr þig fyrir markvissari öryggisprófanir
- Hlítingarskýrslur þegar þú þarft á þeim að halda (AI assisted Penetration Test)
Fyrir síbreytilegar þarfir fyrirtækja
- Engin uppsetning. Engin flókin verkfæri.
- Þú sérð strax hvað skiptir máli.
- Notkun á nýjustu gervigreindarmódelum til að finna áður óþekkta veikleika.
- Mannleg yfirferð og staðfesting á veikleikum.
Fyrir hakkarana okkar
- Gervigreindarhakkarinn er hannaður til að styðja við hakkarasamfélagið, ekki skipta þeim út.
- Með því að fjarlægja einföldustu veikleikana fá hakkararnir meira svigrúm til að finna flóknari og verðmætari veikleika.
- Kemur ekki í staðinn fyrir sköpunargáfu hakkara og eigin notkun á gervigreind.
