Öryggissérfræðingar

Búum til öruggara stafrænt samfélag

Villuveiðigáttin Verjum Ísland opnar fjölda tækifæra fyrir öryggissérfræðinga. Ef þú gengur til lið við okkur muntu ekki aðeins auka stafrænt öryggi samfélagsins heldur hafa kost á að læra nýjustu aðferðir við að hakka kerfi og verða hluti af samfélagi öryggissérfræðinga.

Sækja um

Við trúum á mátt lýðvirkjunar

1. Krefjandi verkefni

Viltu öðlast hagnýta reynslu af raunverulegum öryggisveikleikum? Öryggissérfræðingarnir sem vinna með okkur dýpka þekkingu sína og verða enn betri á sínu sviði. Þeir verða eftirsóttir starfskraftar um leið og þeir leggja sitt af mörkum til að auka stafrænt áfallaþol Íslands.

2. Verðlaun og viðurkenningar

Öryggissérfræðingar hafa einstaka hæfileika og geta leyst flókin vandamál. Defend Iceland veitir verðlaun og viðurkenningar í takt við frammistöðu og við hvetjum okkar fólk til að læra meira, gera betur og verða framúrskarandi á sínu sviði.

3. Verðmæt tengsl

Viltu hitta aðra öryggissérfræðinga?

4. Tækni í fremstu röð

Öryggissérfræðingar Defend Iceland eiga þess kost að læra nýjustu aðferðir við að hakka kerfi og vera í fremstu röð þegar kemur að nýsköpun í faginu.

5. Vertu leiðtogi

Viltu leiða þróun öruggs stafræns samfélags? Öryggissérfræðingar verða bæði frumkvöðlar og leiðtogar í íslensku samfélagi.

6. Áhrif á heimsvísu

Taktu þátt í að skapa Íslandi leiðandi stöðu þegar kemur að forvirkum stafrænum öryggisaðgerðum. Þitt framlag mun ekki aðeins tryggja örugga stafræna framtíð íslensks samfélags heldur heimsins alls.

Af hverju að vera með?Verðlaunafé og viðurkenningar

Verðlaunafé

Stórir öryggisveikleikar meira verðlaunafé

Öryggissérfræðingum er greitt fyrir öryggisveikleika sem þeir finna í villuveiðiherferðum og hækkar verðlaunafé í takt við alvarleika veikleikanna.

Viðurkenningar

Þau bestu fá skemmtileg aukaverðlaun

Framúrskarandi öryggissérfræðingar fá viðurkenningar frá Defend Iceland - og þau allra bestu geta fyllt veggina af viðurkenningum.

Skráning tekur tvær mínútur
Sækja um

Taktu þátt í að breyta stafrænni öryggismenningu Íslands.

Tilkynna veikleika

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.