Skip To main content
defend Iceland

Gervigreind á víglínunni

Nýjar áskoranir, nýjar lausnir

Fantasíu salur, Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a

3. september frá kl 16:00

Upplýsingar um viðburðinn

Þann 3. september bjóða Defend Iceland og Wise í Happy Hour þar sem við beinum sjónum að því hvernig gervigreind er að umbreyta öryggislandslaginu.

Hvernig er gervigreind notuð í nútíma átökum? Hvernig breytir hún netógnum og vörnum? Og hvað þýðir þessi þróun fyrir fyrirtæki, stofnanir og samfélagið allt?

Á dagskránni verða erindi frá sérfræðingum sem veita innsýn í ólíkar hliðar öryggismála, þar á meðal erlendir gestir frá NATO CCDCOE og Úkraínu sem vinna daglega með þeim áskorunum sem eru að móta framtíð öryggismála.

Viðburðurinn er opinn öllum en skráning er nauðsynleg.

Dagskrá:

Húsið opnar kl. 16:00 en dagskrá hefst kl. 16:15

  1. Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir, Fundarstjóri opnar viðburðinn
  2. Benedikt Rúnarsson, Öryggisstjóri Wise: Af hverju Wise og Defend Iceland?
  3. Erik Kursetgjerde, Fulltrúi Noregs hjá NATO Cooperative Cyber Defence Centre of Excellence: Building Partnerships in Times of Crisis: Lessons from Ukraine
  4. Natalia Mishyna, Sérfræðingur hjá Miðstöð nýsköpunar og þróunar á varnartækni, Varnamálaráðuneyti Úkraínu: How AI is Transforming Warfare & Shapes Future Battlefield
  5. Steinar Jónas Kristjánsson, Framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs Samkaupa: Öryggisáskoranir í Retail heiminum
  6. Hjörtur Pálmi Pálsson, Netöryggis- og samfélagsstjóri Defend Iceland: Hvernig ég hakkaði stærsta tryggingarfyrirtæki heims með gervigreind

Boðið verður upp á fordrykk svo verða sérstök tilboð á barnum.

Tilkynna veikleika