Skip To main content

Skráning á viðburð

404 Villa! Happy hour fannst ekki

Hvar? Fantasíu sal á Vinnustofu Kjarval (2.hæð)

Hvenær? 8. maí 2025 (16:00 - 18:00)

Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.

Upplýsingar

This form is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

Upplýsingar um viðburðinn

Hvað er betra en að fá sér frískandi drykk eftir vinnu og hlusta á eldheitar umræður um öryggis- og varnarmál? Með viðburðinum langar okkur að vekja bæði athygli og umræðu á nauðsynlegri nýsköpun, þéttara samstarfi og gagnsæi þegar kemur að varnarmálum Íslands, þá sérstaklega netöryggi. Markmiðið er að eiga góða stund saman og við lofum góðum umræðum.

Defend Iceland býður upp á fordrykk á meðan birgðir endast svo verða sérstök tilboð á barnum.

Dagskrá

  • 16:00 - Hús opnar, fordrykkur í boði Defend Iceland
  • 16:30 - Dagskrá hefst
  • 16:45 - Panelumræður:
    • Ávallt viðbúin, aldrei tilbúin. Hvernig verjum við stafræn landamæri Íslands?
    • Pallborðsþátttakendur eru:
    • Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar (CERTIS)
    • Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur
    • Gyða Bjarkadóttir, Defender hjá Defend Iceland
    • Bæring Logason, Upplýsingaöryggisstjóri (CISO) hjá ISAVIA
    • Pallborðsstjórnandi: Sóley Kaldal, áhættustýringar- & öryggisverkfræðingur og sérfræðingur á skrifstofu auðlinda hjá Atvinnuvegaráðuneytinu
  • 17:30 - Happy Hour

Hlökkum til að sjá þig!

Defend Iceland teymið

Pallborðsþátttakendur:

Guðmundur Arnar Sigmundsson

Guðmundur Arnar Sigmundsson, CERTIS

Guðmundur leiðir starfsemi netöryggissveitarinnar (CERTIS) sem hefur það hlutverk að greina netógnir, viðhafa ástandsvitund, upplýsa um netógnir og samræma viðbrögð við netatvikum í netumdæmi Íslands. Guðmundur er með B.Sc próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist árið 2008 með M.Sc próf í fjarskiptaverkfræði, með sérhæfingu í net- og upplýsingaöryggi, frá Háskólanum í Karlsruhe í Þýskalandi. Hann hefur sautján ára reynslu af störfum á fjarskiptamarkaði. Guðmundur starfaði fyrir Burðarnet og Farsímakjarna Vodafone til ársins 2013 og síðan sem deildarstjóri Netlausna Nýherja til 2017. Þá starfaði hann á árunum 2017-2019 sem svæðisstjóri fyrir net- og öryggisdeild 5G þróunarumhverfa fyrir Ericsson í Gautaborg ásamt því að sitja í global arkitektaráði netöryggismála fyrir sömu deild. Hann flutti aftur heim til Íslands árið 2019 og starfaði sem deildarstjóri net- og samskiptalausna Origo þar til hann tók við hjá CERTIS 2021.

Erlingur Erlingsson

Erlingur Erlingsson, Hernaðarsagnfræðingur

Erlingur Erlingsson starfar sem ráðgjafi Google í mannréttindamálum og samskiptum við alþjóðastofnanir. Hann starfaði áður hjá Meta/Facebook, en þar áður lengst af í íslensku utanríkisþjónustunni, m.a. sem staðgengill sendiherra í Washington. Erlingur hefur auk þess starfað fyrir NATO og Sameinuðu Þjóðirnar í Afganistan. Hann stundaði doktorsnám í hernaðarsögu við Oxfordháskóla og er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

Gyða Bjarkadóttir

Gyða Bjarkadóttir, Defender hjá Defend Iceland

Gyða Bjarkadóttir er hugbúnaðarprófari með meiru sem leggur sérstaka áherslu á notendaupplifun og öryggismál. Þótt formlegur ferill hennar í prófunum hafi hafist árið 2007, segir hún hugbúnaðarbresti alltaf hafa laðast að sér eins og mýflugur frá barnsaldri, en hún fékk iðulega bilað dót í hendurnar. Hún hakkar einnig til góðs en undanfarið hefur hún prófað sig áfram í villuveiðigátt (bug bounty) Defend Iceland og fundið fjölmarga bresti hjá viðskiptavinum áður en óprúttnir aðilar gera það.

Bæring Logason

Bæring Logason, CISO hjá ISAVIA

Bæring Breiðfjörð Logason er upplýsingaöryggisstjóri hjá Isavia samstæðunni með fimmtán ára reynslu í net- og upplýsingaöryggi, áhættustjórnun og innleiðingu alþjóðlegra staðla eins og ISO 27001. Hann hefur stýrt öryggis- og gæðamálum hjá leiðandi tæknifyrirtækjum á Íslandi, þar á meðal Sýn og Vodafone. Bæring er verkfræðingur með meistaragráðu í gæða- og umbótastjórnun frá Florida Institute of Technology. Hann sérhæfir sig í stefnumótun, áhættugreiningum og rekstraröryggi í flóknum upplýsingakerfum.

Sóley Kaldal

Sóley Kaldal, Atvinnuvegaráðuneytið

Sóley Kaldal er áhættustýringar- og öryggisverkfræðingur sem einnig hefur gráðu í alþjóðlegum öryggismálum frá Yale háskóla í Bandaríkjunum. Sóley hefur komið að þjóðaröryggismálum og alþjóðasamskiptum frá ýmsum sjónarhornum, m.a. sem samningamaður fyrir stjórnarráðið, sem ráðgjafi þjóðaröryggisráðs og sem sérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni.

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.