Fyrir öryggis- og tæknistjóra
- Finnur veikleika áður en þeir verða að atvikum.
- Dregur úr hávaða og undirbýr þig fyrir markvissari öryggisprófanir
- Hlítingarskýrslur þegar þú þarft á þeim að halda (AI assisted Penetration Test)
Finndu veikleikana áður en aðrir gera það - láttu gervigreindarhakkarann prófa kerfin þín
Gervigreindin finnur það augljósa. Manneskjan finnur það óvænta.
Gervigreindarhakkarinn er sjálfvirkur, heiðarlegur hakkari sem sannreynir veikleika í þínum kerfum með því að herma eftir raunverulegum árásum. Hann fylgist með þínum kerfum allan sólarhringinn, allt árið í kring, finnur veikleika hratt og hjálpar þér að bregðast við áður en þeir eru nýttir af meinfýsum aðilum.
Ólíkt hefðbundnum skönnum sem leita að þekktum veikleikum, hermir gervigreindarhakkarinn eftir hegðun árásaraðila og getur sett saman flókna veikleikaröð (e. attack chain). Hann dregur úr hávaða og undirbýr þig fyrir markvissari öryggisprófanir og hlítingarskýrslur þegar þú þarft á þeim að halda.
Engin uppsetning. Engin flókin verkfæri. Þú sérð strax hvað skiptir máli.
Hvað finnur gervigreindarhakkarinn hjá þér?
Empowering enterprise security by identifying critical vulnerabilities and reporting misconfigurations, providing the intelligence needed for IT teams to patch and remediate risks before they manifest.
AI DEFENDER PROGRESS
14/ 16
VALIDATED TASKS COMPLETE
PHASE ROADMAP
Topology mapping and ingress validation
Token leak simulation and callback audits
DOM-based injection across tenant boundaries
LIVE EXECUTION LOG
_root@aurora:~$ ▮
AI Defender is currently optimizing payloads for tenant-specific sanitization filters using the Aurora core intelligence.
Ekki staðgengill fyrir hakkarann, heldur fyrsta varnarlínan.
Ekki bara fleiri niðurstöður, heldur réttar niðurstöður sem skipta máli. Hannað með raunverulegum hökkurum, ekki einungis byggt á skönnunartækni
Einföld uppfletting í gagnagrunna
Mannleg yfirferð og staðfesting á veikleikum
Gervigreindarhakkarinn er ekki staðgengill heldur fyrsta varnarlínan. Gervigreindin sér um það sem vélar gera best: hún getur keyrt stöðugar prófanir án hlés, farið kerfisbundið í gegnum stór árásarsvæði og greint veikleika á hraða og í umfangi sem einfaldlega er ekki mögulegt fyrir manneskju. Hún gleymir engu, þreytist ekki og getur fylgst með breytingum í rauntíma.
Í raun má segja að gervigreindarhakkarinn undirbúi kerfin fyrir mannlega hakkarann. Hann finnur grunnveikleika, opnar flötinn og flaggar möguleg vandamál snemma, þannig að sérfræðingar geta síðan einbeitt sér að flóknari og skapandi árásarleiðum.
Mannlegir hakkarar koma hins vegar með eitthvað sem ekki er hægt að sjálfvirknivæða: innsæi, reynslu og skapandi árásarhugsun. Þeir sjá tengingar sem eru ekki augljósar, prófa óhefðbundnar leiðir og hugsa eins og raunverulegir árásaraðilar - ekki bara eftir fyrirfram skilgreindum mynstrum.
Munurinn liggur líka í því að gervigreind finnur það sem má finna, á meðan mannlegir hakkarar finna það sem engin bjóst við að væri til.
Saman þýðir þetta betri niðurstöður: hraðari greining, breiðari yfirsýn og dýpri, raunhæfari prófanir.
Fyrirtæki vilja notast við hann þar sem hann eykur bæði hraða og umfang öryggisprófana án þess að auka flækjustig.
Þú færð betri yfirsýn yfir öryggi, hraðari viðbrögð og skilvirkari notkun á sérfræðiþekkingu með gervigreindarhakkaranum.
Hann prófar kerfið þitt án þess að komast í óviðkomandi gögn, og allt fer fram í öruggu, stýrðu og rekjanlegu umhverfi.
Hægt er að fá hlítingarskýrslu (AI assisted Penetration Test) þegar þér hentar!
Hafðu samband hér fyrir neðan