Lykilatriði til að uppfylla hlítingu NIS2 er varðar VDP er að vera með skýra veikleikastjórnun. Því er mikilvægt að vera með skilgreint ferli sem tekur við eftir að veikleikatilkynning berst. Án veikleikastjórnar er hlítingin ekki gild.
Þegar veikleiki berst í gegnum VDP ætti hann að fara í skilgreint ferli veikleikastjórnunar:
1. Móttaka og staðfestingVeikleikinn er móttekinn á öruggan hátt og metið er hvort hann sé gildur og viðeigandi.
2. Áhættumat og forgangsröðunMetið er hversu alvarlegur veikleikinn er, hvaða kerfi hann snertir og hvaða áhrif hann getur haft.
3. ÚrbæturViðeigandi teymi lagar veikleikann eða grípur til mótvægisaðgerða samkvæmt innra verklagi.
4. Eftirfylgni og lokunStaðfest er að veikleikinn sé raunverulega lagaður og málið er lokað með skráningu til rekjanleika.
5. Samskipti (valkvætt)Ef við á er tilkynnanda veitt staðfesting eða þakkir fyrir ábendinguna.
VDP tryggir að veikleikar berist rétta leið, en veikleikastjórnun tryggir að rétt sé brugðist við þeim og er mikilvægt að allir aðilar geta innbyrt veikleika tilkynnta í gegnum VDP í þeirra veikleikastjórnunarferli.
Ef upp vakna spurningar endilega hafðu samband við okkur hér