Skip To main content
defend Iceland
Villuveiðigátt

Forvirkar netöryggisráðstafanir

Villuveiðigátt gerir fyrirtækjum kleift að nýta sérþekkingu heiðarlegra hakkara til að finna og laga öryggisveikleika áður en meinfýsir aðilar geta nýtt sér þá. Þetta er forvirk netöryggislausn sem styrkir varnir fyrirtækja með raunverulegum öryggisprófunum.

Hvað er villuveiðigátt?

Snúum vörn í sókn.

Villuveiðigátt Defend Iceland er forvirk netöryggislausn sem tengir saman fyrirtæki og heiðarlega hakkara til að finna og tilkynna öryggisveikleika áður en þeir eru misnotaðir.

Fyrirtæki skilgreina umfang prófana og heiðarlegir hakkarar framkvæma öryggisprófanir á kerfum þeirra. Þegar veikleikar finnast skila hakkararnir ítarlegum skýrslum og fá greidd verðlaun fyrir staðfestar niðurstöður. Defend Iceland sér um örugg samskipti, utanumhald skýrslna og greiðslu verðlaunafjár.

Lausnin er sérstaklega þróuð fyrir íslensk fyrirtæki og opinberar stofnanir og gerir þeim kleift að innleiða villuveiðigátt á einfaldan og hagkvæman hátt.

Reynsla Defend Iceland sýnir að ríflega 95% þeirra öryggisveikleika sem heiðarlegu hakkararnir okkar finna eru áður óþekktir. Með því að líkja eftir aðferðum raunverulegra árásaraðila finna þeir veikleika sem hefðbundin skönnunartól greina oft ekki.

Framtíðarsýn Defend Iceland er að öll fyrirtæki og stofnanir á Íslandi hafi aðgang að villuveiðigáttinni. Þannig eflum við öryggi stafrænna innviða Íslands og aukum áfallaþol samfélagsins.

Hvernig virkar mat og forgangsröðun öryggisveikleika?

  • Drög að skýrslu: Hakkarinn klárar og sendir inn veikleikaskýrsluna.

  • Yfirferð (Ekki hafið): Veikleikanefndin framkvæmir fyrstu skimun. Skýrslur sem standast viðmið yfirferðar fara í yfirferð; þær sem gera það ekki eru sendar aftur til hakkarans með athugasemdum.

  • Í yfirferð: Veikleikanefndin endurgerir og staðfestir veikleikann og skrifar ítarlega skýrslu. Staðfestur veikleiki er samþykktur; öðrum er hafnað, eða þeir merktir sem tvítekning ef sami veikleiki hefur þegar verið tilkynntur af öðrum hakkara.

  • Bíður staðfestingar: Viðskiptavinurinn fer yfir alla skýrsluna og ákveður verðlaunin sem hann vill greiða. Hann getur einnig hafnað skýrslunni á þessu stigi.

  • Bíður viðurkenningar: Hakkarinn velur greiðslumáta og getur að eigin vali gefið hluta af verðlaunum sínum í samfélagssjóðinn.

  • Bíður greiðslu: Verðlaunin eru greidd út. Þetta skref getur tekið allt að þrjá virka daga.

  • Lokið: Yfirferðarferlinu er lokið.

Gott að vita

  • Hakkarar og viðskiptavinir geta haft beint samband við veikleikanefndina á skrefum 02–06 og Lokið (merkt með spjalltákni).
  • Dæmigert mál tekur einn til fimm virka daga. Flóknir veikleikar (erfitt að sanna, gögn vantar og svo framvegis) geta tekið lengri tíma.

Viltu tilkynna öryggisveikleika?

Við hvetjum öll til að tilkynna öryggisveikleika sem þau að finna í net-, tölvu- og hugbúnaðarkerfum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka víðsvegar um samfélagið.

Uppgötvun

Fannstu veikleika í net-, tölvu- eða hugbúnaðarkerfi? Gakktu til liðs við hakkara Defend Iceland og leggðu þitt af mörkum í baráttunni gegn tölvuglæpum.

Reynsla og þekking

Þekking þín og hæfileikar geta gegnt mikilvægu hlutverki við að styrkja netvarnir Íslands.

Leggðu þitt af mörkum

Gakktu í lið heiðarlegu hakkara Defend Iceland.

Tilkynna veikleika