Skip To main content

Einn færasti hakkari heims heldur námskeið á Íslandi í öryggisveikleika leit (e. Vulnerability hunting)

Jason Haddix, einn færasti hakkari heims og forstjóri Arcanum Security, er væntanlegur til landsins í næstu viku og mun leiða námskeið í öryggisveikleika leit í samstarfi við Defend Iceland dagana 21. - 23. janúar í Háskólanum í Reykjavík. Jason kemur frá Bandaríkjunum og er með yfir 20 ára reynslu í netöryggi auk þess hefur hann hlotið viðurkenningu sem einn af fremstu sérfræðingum á villuveiðigáttum (Bug Bounty Platform). Alþjóðleg fyrirtæki á borð við Apple, Microsoft, Google, KPMG, Deloitte, Amazon, Walmart og fleiri hafa reglulega nýtt sér námskeið og þekkingu Jason Haddix. 

“Það er aðdáunarvert hvað Ísland hefur náð langt í netöryggi á skömmum tíma. Mig hefur lengi langað til heimsækja Ísland og er þakklátur fyrir tækifærið að deila minni reynslu og þekkingu á villuveiðigáttum (Bug-bounty) með sérfræðingum innan íslenskra fyrirtækja og stofnanna.”

Jason Haddix, forstjóri Arcanum Security. 

Villu veiðari

Villuveiðigáttir (e. bug bounty platforms) eru þekkt leið til að virkja öryggissérfræðinga sem herma aðferðir hakkara við leit að öryggisveikleikum. Námskeiðið ber heitið “Bug Hunter’s Methodology” og mun einblína á hvað fyrirtæki þurfa að tileinka sér eða uppfæra til að auka sitt netöryggi og koma í veg fyrir netárásir og gagnaleka. Þátttakendur fá yfirgripsmikla yfirsýn yfir þá aðferðafræði sem árásaraðilar nota til að finna og nýta sér veikleika í kerfum fyrirtækja og hvernig þeir geta beitt þeim upplýsingum sem þeir finna gegn fyrirtækjunum.

“Þetta námskeið er einstakt tækifæri til að skyggnast inn í vopnabúr árásaraðila og netöryggissérfræðinga og er ætlað íslenskum einstaklingum og fyrirtækjum sem vilja efla netöryggi sitt enn frekar. Tíðni netárása fer ekki lækkandi og þetta námskeið er hluti af meginstefnu okkar í Defend Iceland sem er að styðja við og efla netöryggisþekkingu í íslensku samfélagi.” Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland. 

Defend Iceland er samstarfsverkefni við HÍ og HR og hefur 380 milljón króna styrk frá Evrópusambandinu í gegnum öndvegissetur Evrópusambandsins í netöryggi (ECCC) auk þess að vera stutt af tækniþróunarsjóð í gegnum Vöxt.


Skráning á námskeiðið og dagskrá má finna hér

Aðrar fréttir

Sjá allar fréttir

How I found all corporate usernames in Iceland

One of my favorite methods to gain initial access to companies is finding valid credentials. If your target is just one employee, this might be near impossible. But what if you have hundreds, or even thousands of targets? What if the target victim is anyone in Iceland? Then gaining valid credentials goes from near impossible to near certain.
Lesa meira

XSS Beyond the Perimeter: When Internal Systems Become Attack Surfaces

Cross-site scripting (XSS) is often treated as a problem that ends at the public perimeter. In reality, customer input does not stop at the landing page. It flows into CRMs, ticketing consoles, and internal dashboards that may never have faced a penetration test. This walkthrough, based on real reports to Defend Iceland, shows how a harmless contact form can compromise the helpdesk staff who read it. To illustrate the chain end to end, we built a Netbankinn-themed lab that mirrors what we see in production environments. The public site is squeaky clean. The internal system is not,
Lesa meira

Hvernig villuveiðigáttir hjálpa þér að uppfylla NIS2

Ný tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi, NIS2, er yfirvofandi og gerir auknar kröfur til mikilvægra og nauðsynlegra aðila um netöryggi, áhættustýringu og upplýsingagjöf. Fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa nú að sýna fram á aukna öryggisvitund, skilvirkari viðbragðsáætlanir og betri stjórn á veikleikum. Ein skynsamleg og hagkvæm leið til að ná þessum markmiðum er með villuveiðigáttum og stefnu um ábyrga upplýsingagjöf öryggisveikleika (e. coordinated vulnerability disclosure).
Lesa meira

404 Villa Happy Hour Fannst ekki!

Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.
Lesa meira

Guðmundur Fertram fjárfestir í Defend Iceland

Við hjá Defend Iceland erum stolt af því að tilkynna nýja fjárfestingu frá fjárfestingafélagi í eigu Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, stofnanda Kerecis, og fjölskyldu hans. Með þessari fjárfestingu styðja þau við framtíðarsýn okkar um öruggara stafrænt samfélag með þróun á villuveiðigátt okkar og öðrum lausnum
Lesa meira

Spennandi áfangi hjá Defend Iceland

Við fórum í loftið í febrúar á þessu ári og erum stolt af því að vera komin í samstarf við 27 frábæra viðskiptavini. Þessir aðilar spanna öll svið samfélagsins, frá stórum hluta fjármálageirans til lykilaðila í orku- og heilbrigðisgeiranum - og nú Alþingi Íslendinga.
Lesa meira

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.