Skip To main content

Kóði og Defend Iceland í samstarf

Kóði og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að fyrirbyggja árásir á net- og tölvukerfi Kóða.

 

Með notkun villuveiðigáttarinnar nýtir Kóði fremstu aðferðir í netöryggi til að auka viðnámsþrótt net- og tölvukerfa fyrirtækisins og eykur þar með öryggi upplýsinga um viðskiptavini sína. 

 

Markmið Defend Iceland er að búa til öruggara stafrænt samfélag. Aukin þekking á tilvist og eðli öryggisveikleika í kerfum fyrirtækja og stofnana er forsenda þess að þessu markmiði verði náð, enda fjölgar netárásum skipulagðra glæpahópa hratt.

 

Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða:

„Kóði leggur mikla áherslu á öryggismál í sinni starfsemi. Öll fjármálafyrirtæki landsins nota hugbúnaðarlausnir frá okkur og þúsundir fyrirtækja treysta á lausnir eins og Keldan.is og Hluthafaskra.is. Viðskiptavinir sýna okkur mikið traust og við viljum að kerfin okkar séu eins örugg og kostur er. Við hlökkum til að vinna með Defend Iceland og auka öryggi enn frekar í stafrænum heimi.”

 

Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, stjórnandi viðskiptaþróunar-, sölu- og markaðsmála Defend Iceland:

„Við hjá Defend Iceland leggjum áherslu á mikilvægi forvirkra netöryggisaðgerða, sérstaklega þegar kemur að viðkvæmum gögnum og lykilinnviðum samfélagsins. Stór hluti fjármálakerfisins er nú þegar kominn í viðskipti við Defend Iceland og það er okkur því sérstakt ánægjuefni að Kóði, leiðandi aðili í þjónustu við fjármálafyrirtæki, noti nýjustu tækni í baráttunni við netárásir. Við bjóðum Kóða hjartanlega velkominn í hóp viðskiptavina Defend Iceland og hlökkum til að vinna með fyrirtækinu að öruggara stafrænu samfélagi.”

 

Í villuveiðigátt Defend Iceland eru aðferðir tölvuhakkara og skipulagðra netárásarhópa hermdar til að leita með markvissum hætti að veikleikum í upplýsingatæknikerfum notenda kerfisins. Þannig er hægt að lagfæra öryggisveikleika áður en tölvuglæpamenn nýta þá til að brjótast inn, ná stjórn á viðkomandi kerfum og framkvæma gagnagíslatöku.

Aðrar fréttir

Sjá allar fréttir

How I found all corporate usernames in Iceland

One of my favorite methods to gain initial access to companies is finding valid credentials. If your target is just one employee, this might be near impossible. But what if you have hundreds, or even thousands of targets? What if the target victim is anyone in Iceland? Then gaining valid credentials goes from near impossible to near certain.
Lesa meira

When Retired Domains Come Back to Haunt: The Hidden Risk of Legacy Corporate Assets

Organizations evolve through mergers, acquisitions, and rebranding. Old domains get retired, but what happens when those domains can still receive password resets or act as the login email for third-party services for the previous owner? This post reveals an overlooked vulnerability we've seen through Defend Iceland's bug bounty platform: expired corporate domains that remain deeply embedded in third-party SaaS accounts. When these domains become available for registration, attackers can inherit access to SaaS accounts that still use the retired email domain for login or recovery. We'll show you exactly how this happens and why "just let it expire" is a dangerous domain retirement strategy.
Lesa meira

XSS Beyond the Perimeter: When Internal Systems Become Attack Surfaces

Cross-site scripting (XSS) is often treated as a problem that ends at the public perimeter. In reality, customer input does not stop at the landing page. It flows into CRMs, ticketing consoles, and internal dashboards that may never have faced a penetration test. This walkthrough, based on real reports to Defend Iceland, shows how a harmless contact form can compromise the helpdesk staff who read it. To illustrate the chain end to end, we built a Netbankinn-themed lab that mirrors what we see in production environments. The public site is squeaky clean. The internal system is not,
Lesa meira

Where Unicode Collation Meets Punycode Domains: A Zero-Click Account Takeover

This post explains a subtle Unicode/Punycode pitfall that can appear in modern authentication flows. It highlights how a normalization mismatch enabled a zero‑click account takeover (ATO) scenario and how to remediate it safely. This vulnerability was reported through Defend Iceland's bug bounty platform, affecting one or more customers. The independent security research surfaced a subtle authentication quirk worth sharing with the broader community. For engineers, it's a clear lesson about the intersection of database collation and internationalized domains creating unexpected attack vectors.
Lesa meira

Hvernig villuveiðigáttir hjálpa þér að uppfylla NIS2

Ný tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi, NIS2, er yfirvofandi og gerir auknar kröfur til mikilvægra og nauðsynlegra aðila um netöryggi, áhættustýringu og upplýsingagjöf. Fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa nú að sýna fram á aukna öryggisvitund, skilvirkari viðbragðsáætlanir og betri stjórn á veikleikum. Ein skynsamleg og hagkvæm leið til að ná þessum markmiðum er með villuveiðigáttum og stefnu um ábyrga upplýsingagjöf öryggisveikleika (e. coordinated vulnerability disclosure).
Lesa meira

404 Villa Happy Hour Fannst ekki!

Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.
Lesa meira

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.