Skip To main content

Markús Kötterheinrich ráðinn til Defend Iceland

Markús Kötter­heinrich hef­ur verið ráðinn tækni- og þró­un­ar­stjóri hjá Def­end Ice­land og er hluti af stofnteymi fyr­ir­tæk­is­ins.

Markús stundaði nám í Tölv­un­ar­fræði við Há­skóla Íslands. Áður en hann gekk til liðs við Def­end Ice­land starfaði hann hjá Valitor, núna Rapyd Europe, þar sem hann sinnti hug­búnaðarþróun í lyk­il­kerf­um fyr­ir­tæk­is­ins bæði á korta­út­gáfu- og á færslu­hirðing­ar­sviði. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá Def­end Ice­land. 

Býr yfir viðamik­illi reynslu 

Markús hef­ur jafn­framt starfað sem hug­búnaðarsér­fræðing­ur hjá Orku­veitu Reykja­vík­ur. Þar hannaði hann, stýrði og leiddi þróun á hug­búnaðar­kerfi fyr­ir gjald­töku á hraðhleðslu­stöðvum Orku nátt­úr­unn­ar, sem stuðlaði að bætt­um þjón­ustu­mögu­leik­um fyr­ir not­end­ur raf­bíla.

Auk þess hef­ur Markús starfað hjá Cred­it­in­fo, þar sem hann vann að öll­um helstu hug­búnaðar­kerf­um fyr­ir­tæk­is­ins og leiddi meðal ann­ars hönn­un og þróun á greiðslu­mat­s­kerfi og Fjöl­miðlavakt­inni.

„Við fögn­um því að hafa fengið Markús til liðs við okk­ur. Hann býr yfir viðamik­illi reynslu og sérþekk­ingu sem mun efla starf­semi Def­end Ice­land enn frek­ar. Við bjóðum Markús inni­lega vel­kom­inn og hlökk­um til að vinna með hon­um að því að búa til ör­ugg­ara sta­f­rænt sam­fé­lag,“ er haft eft­ir Theó­dóri Ragn­ari Gísla­syni, fram­kvæmda­stjóra og stofn­anda Def­end Ice­land, í til­kynn­ing­unni.

Aðrar fréttir

Sjá allar fréttir

Hvernig villuveiðigáttir hjálpa þér að uppfylla NIS2

Ný tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi, NIS2, er yfirvofandi og gerir auknar kröfur til mikilvægra og nauðsynlegra aðila um netöryggi, áhættustýringu og upplýsingagjöf. Fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa nú að sýna fram á aukna öryggisvitund, skilvirkari viðbragðsáætlanir og betri stjórn á veikleikum. Ein skynsamleg og hagkvæm leið til að ná þessum markmiðum er með villuveiðigáttum og stefnu um ábyrga upplýsingagjöf öryggisveikleika (e. coordinated vulnerability disclosure).
Lesa meira

404 Villa Happy Hour Fannst ekki!

Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.
Lesa meira

Einn færasti hakkari heims heldur námskeið á Íslandi í öryggisveikleika leit (e. Vulnerability hunting)

Jason Haddix, einn færasti hakkari heims og forstjóri Arcanum Security, er væntanlegur til landsins í næstu viku og mun leiða námskeið í öryggisveikleika leit í samstarfi við Defend Iceland dagana 21. - 23. janúar í Háskólanum í Reykjavík. Jason kemur frá Bandaríkjunum og er með yfir 20 ára reynslu í netöryggi auk þess hefur hann hlotið viðurkenningu sem einn af fremstu sérfræðingum á villuveiðigáttum (Bug Bounty Platform). Alþjóðleg fyrirtæki á borð við Apple, Microsoft, Google, KPMG, Deloitte, Amazon, Walmart og fleiri hafa reglulega nýtt sér námskeið og þekkingu Jason Haddix. 
Lesa meira

Spennandi áfangi hjá Defend Iceland

Við fórum í loftið í febrúar á þessu ári og erum stolt af því að vera komin í samstarf við 27 frábæra viðskiptavini. Þessir aðilar spanna öll svið samfélagsins, frá stórum hluta fjármálageirans til lykilaðila í orku- og heilbrigðisgeiranum - og nú Alþingi Íslendinga.
Lesa meira

Defend Iceland gerir samning við Origo til að efla netöryggi

Við hjá Defend Iceland erum stolt af því að taka höndum saman við Origo til að efla netöryggi kerfa þeirra. Netárásir, sem nýta veikleika í hugbúnaði, halda áfram að aukast verulega. Það er mikilvægt að finna þessa veikleika áður en árásarmenn gera það – því í stafræna heimi okkar er heilsa alls vistkerfis hugbúnaðarins nauðsynleg til að halda nauðsynlegri þjónustu gangandi.
Lesa meira

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.