
Hvernig villuveiðigáttir hjálpa þér að uppfylla NIS2
Ný tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi, NIS2, er yfirvofandi og gerir auknar kröfur til mikilvægra og nauðsynlegra aðila um netöryggi, áhættustýringu og upplýsingagjöf. Fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa nú að sýna fram á aukna öryggisvitund, skilvirkari viðbragðsáætlanir og betri stjórn á veikleikum. Ein skynsamleg og hagkvæm leið til að ná þessum markmiðum er með villuveiðigáttum og stefnu um ábyrga upplýsingagjöf öryggisveikleika (e. coordinated vulnerability disclosure).
NIS2 leggur áherslu á stjórnun veikleika
Í NIS2 kemur hugtakið „samræmd upplýsingagjöf um veikleika“ (CVD) fyrir ellefu sinnum í opinberu skjali tilskipunarinnar, sem undirstrikar hversu mikilvæg meðhöndlun veikleika er orðin í opinberri stefnu. Aðildarríki og tilgreindir aðilar bera nú ábyrgð á að skrá, meta og miðla upplýsingum um veikleika á skipulagðan hátt. Þar að auki kveður tilskipunin á um stofnun evrópsks gagnagrunns um veikleika – og setur þannig ramma um kerfisbundna vinnu á þessu sviði.
Villuveiðigáttir og ábyrgar upplýsingaleiðir
Villuveiðigáttir (e. bug bounty platforms) er hugbúnaður sem gera fyrirtækjum kleift að nýta sér sérfræðiþekkingu heiðarlega hakkara til að finna og tilkynna veikleika. Þegar villuveiðigátt er stýrt af sérhæfðu teymi, eins og hjá Defend Iceland, er tryggt að allir tilkynntir veikleikar séu flokkaðir, metnir og nákvæmar skýrslur séu útbúnar ásamt leiðbeiningum um úrbætur. Þetta er í beinu samræmi við NIS2-kröfur um öfluga stjórnun veikleika og sýnir fram á að viðkomandi aðili sé með skýrar verklagsreglur og viðbragðsáætlun.
Styður við áhættustýringu og meðhöndlun atvika
Ein af meginkröfum NIS2 er að aðilar hafi virka áhættustýringu og skýrt verklag fyrir meðhöndlun öryggisatvika. Villuveiðigáttir styðja við þetta með því að:
- Bera kennsl á veikleika áður en þeir eru nýttir af meinfýsnum netárásar aðilum.
- Styðja við hraðari viðbrögð með rauntímaupplýsingum.
- Eiga í samstarfi við ytri sérfræðinga sem styrkja innri teymi fyrirtækja.
Þetta eykur ekki aðeins netöryggisþroska heldur flýtir einnig fyrir samræmi við tilkynningarskyldur NIS2, t.d. innan 24 klst fyrir fyrstu viðvörun og innan 72 klst. fyrir atvikaskýrslu.
Miðlun upplýsinga um ógnir og innri þekkingaruppbygging
Ein af áherslum NIS2 er miðlun upplýsinga um ógnir milli aðila. Villuveiðigáttir safna dýrmætum gögnum sem hægt er að nýta bæði innanhúss til þekkingaruppbyggingar og sameiginlega með CSIRT- eða ISAC-teymum í viðkomandi iðnaði. Þetta skapar sterkara samfélag og dregur úr líkum á alvarlegum atvikum.
Stuðningur við stjórnunar- og skýrslugerð
NIS2 krefst þess að stjórnendur beri aukna ábyrgð á netöryggi fyrirtækisins. Villuveiðigáttir gera stjórnendum kleift að:
- Sýna hagsmunaaðilum fram á fyrirbyggjandi öryggisstefnu.
- Framvísa reglubundnum niðurstöðum um veikleikagreiningu og viðbrögð.
- Uppfylla skýrslugerðar- og skjalaskyldu NIS2 um netógnir og atvik.
Hvernig getur Defend Iceland aðstoðað?
Defend Iceland býður heildstæða öryggisþjónustu sem styður við samræmi við NIS2:
- Villuveiðigáttir sem eru sérsniðnar fyrir fyrirtæki, með faglegri meðhöndlun tilkynninga, úttektum og tillögum um úrbætur.
- CVD (Coordinated vulnerability disclosure policy) sem styður við upplýsingamiðlun við birgja og þriðja aðila.
- Stöðug öryggisprófun sem styður við kröfur um áframhaldandi áhættustýringu.
Við hjálpum fyrirtækjum að byggja upp öruggari stafrænan rekstur og uppfylla kröfur tilskipunarinnar á skilvirkan og hagkvæman hátt.
Hafðu samband við okkur til að kanna hvernig villuveiðigátt Defend Iceland getur stutt við öryggisstefnu þína og tryggt samræmi við NIS2.