Skip To main content

Segir afsökun Microsoft lélega

„Per­sónu­lega finnst mér þetta lé­leg af­sök­un,“ seg­ir Theo­dór R. Gísla­son, stofn­andi Def­end Ice­land, þar sem hann gagn­rýn­ir Microsoft vegna viðbragða fyr­ir­tæk­is­ins við ör­ygg­is­bil­un sem olli stór­felldri trufl­un á föstu­dag­inn.

Microsoft kenn­ir samn­ing þeirra við ESB um að gölluð ör­ygg­is­upp­færsla hjá Crowd­Strike hafi getað valdið þess­ari trufl­un.

„Það er verið að vísa í sam­komu­lag sem á sér stað árið 2009, sem að Microsoft er gert skylt að opna stýri­kerfi sitt til að auka sam­keppni,“ seg­ir Theo­dór. Þetta er gert til að koma í veg fyr­ir ein­ok­un Microsoft, því þeir bjóði t.a.m. sjálf­ir upp á sams­kon­ar ör­ygg­is­lausn­ir og Crowd­Strike sem þá keyra með mik­il rétt­indi í þeirra stýri­kerfi.

Fyr­ir hon­um hljóm­ar þetta eins og að þeir séu að nota þetta sem ástæðu til að geta lokað stýri­kerfi sínu svo að önn­ur fyr­ir­tæki hafi ekki slík­an aðgang í stað þess að bæta við nauðsyn­legri virkni í þeirra stýri­kerfi svo að þeirra eig­in hug­búnaður þurfi ekki svona mik­il rétt­indi sem hon­um finnst eðli­legri nálg­un.

Hver er mun­ur­inn á not­enda- og stýrikjarna?

Til að skilja þetta bet­ur þurf­um við að vita mun­inn á not­enda­kjarna (userland) og stýrikjarna (ker­nel­l­and).

Við skul­um út­skýra þetta með því að bera sam­an við raf­magns­kerfi heim­il­is­ins.

Ímynd­um okk­ur að not­enda­kjarn­inn sé allt það sem þú ger­ir heima hjá þér, eins og að skipta um ljósa­per­ur eða setja upp snjall­ljósarofa til að bæta lýs­ingu heim­il­is­ins. Ef þú klúðrar ein­hverju þar, þá í versta falli virk­ar ekki sú pera eða rofi (það hug­búnaður). Þú hef­ur ennþá raf­magn ann­ars staðar á heim­il­inu og allt held­ur áfram að virka.

Stýrikjarn­inn er aft­ur á móti eins og raf­magnstafl­an heima hjá þér. Hún stjórn­ar öllu raf­magni sem fer um heim­ilið. Ef þú klúðrar ein­hverju þar, þá get­ur allt raf­magnið farið út, þurrk­ar­inn, elda­vél­in og allt heila klabbið hætta að virka. Þetta er því mik­il­væg­asti part­ur­inn og ef eitt­hvað fer úr­skeiðis þar, þá hryn­ur allt kerfið.

Microsoft get­ur gert það sama og Apple

Microsoft hef­ur verið skikkað með sam­komu­lagi sínu við ESB til að veita ör­ygg­is­veit­um aðgang að stýrikjarn­an­um líkt og þeir sjálf­ir nota í sín­um vör­um, en Theo­dór tel­ur að þeir gætu tak­markað aðgang­inn og boðið upp á sams­kon­ar virkni í not­enda­kjarna líkt og Apple hef­ur gert í gegn­um svo­kallaðar „kerfis­viðbæt­ur“ eða „system level extensi­ons“.

Theó­dór bend­ir á að Crowd­strike lausn­in keyr­ir á macOS stýri­kerfi án þess að hafa aðgang að stýrikjarn­an­um beint. Microsoft held­ur því fram að þeir geti ekki lokað fyr­ir aðgang að stýrikjarn­an­um líkt og Apple gerði árið 2020 til að bæta ör­yggi.

Enn frem­ur bend­ir hann á að Apple hafi búið til aðra leið fyr­ir ör­ygg­is­veit­ur til að selja sína þjón­ustu í not­enda­kjarna og að Microsoft gæti gert það sama en hef­ur kosið að gera það ekki.

Evr­ópu­sam­bandið hef­ur svarað þess­ari gagn­rýni Microsoft og af svar­inu að dæma finnst Theo­dóri mjög lík­legt að Evr­ópu­sam­bandið túlki þenn­an samn­ing þannig að Microsoft hefði vissu­lega getað gert breyt­ing­ar, sem ger­ir það að verk­um að þeir geti boðið upp á sams­kon­ar virkni fyr­ir ör­ygg­is­lausn­ir í gegn­um not­enda­kjarna.

Aðrar fréttir

Sjá allar fréttir

How I found all corporate usernames in Iceland

One of my favorite methods to gain initial access to companies is finding valid credentials. If your target is just one employee, this might be near impossible. But what if you have hundreds, or even thousands of targets? What if the target victim is anyone in Iceland? Then gaining valid credentials goes from near impossible to near certain.
Lesa meira

When Retired Domains Come Back to Haunt: The Hidden Risk of Legacy Corporate Assets

Organizations evolve through mergers, acquisitions, and rebranding. Old domains get retired, but what happens when those domains can still receive password resets or act as the login email for third-party services for the previous owner? This post reveals an overlooked vulnerability we've seen through Defend Iceland's bug bounty platform: expired corporate domains that remain deeply embedded in third-party SaaS accounts. When these domains become available for registration, attackers can inherit access to SaaS accounts that still use the retired email domain for login or recovery. We'll show you exactly how this happens and why "just let it expire" is a dangerous domain retirement strategy.
Lesa meira

XSS Beyond the Perimeter: When Internal Systems Become Attack Surfaces

Cross-site scripting (XSS) is often treated as a problem that ends at the public perimeter. In reality, customer input does not stop at the landing page. It flows into CRMs, ticketing consoles, and internal dashboards that may never have faced a penetration test. This walkthrough, based on real reports to Defend Iceland, shows how a harmless contact form can compromise the helpdesk staff who read it. To illustrate the chain end to end, we built a Netbankinn-themed lab that mirrors what we see in production environments. The public site is squeaky clean. The internal system is not,
Lesa meira

Where Unicode Collation Meets Punycode Domains: A Zero-Click Account Takeover

This post explains a subtle Unicode/Punycode pitfall that can appear in modern authentication flows. It highlights how a normalization mismatch enabled a zero‑click account takeover (ATO) scenario and how to remediate it safely. This vulnerability was reported through Defend Iceland's bug bounty platform, affecting one or more customers. The independent security research surfaced a subtle authentication quirk worth sharing with the broader community. For engineers, it's a clear lesson about the intersection of database collation and internationalized domains creating unexpected attack vectors.
Lesa meira

Hvernig villuveiðigáttir hjálpa þér að uppfylla NIS2

Ný tilskipun Evrópusambandsins um net- og upplýsingaöryggi, NIS2, er yfirvofandi og gerir auknar kröfur til mikilvægra og nauðsynlegra aðila um netöryggi, áhættustýringu og upplýsingagjöf. Fyrirtæki sem falla undir tilskipunina þurfa nú að sýna fram á aukna öryggisvitund, skilvirkari viðbragðsáætlanir og betri stjórn á veikleikum. Ein skynsamleg og hagkvæm leið til að ná þessum markmiðum er með villuveiðigáttum og stefnu um ábyrga upplýsingagjöf öryggisveikleika (e. coordinated vulnerability disclosure).
Lesa meira

404 Villa Happy Hour Fannst ekki!

Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.
Lesa meira

Þessi vefsíða notar vefkökur (e. cookies) til að bæta upplifun notenda af síðunni.