Spennandi áfangi hjá Defend Iceland
Við fórum í loftið í febrúar á þessu ári og erum stolt af því að vera komin í samstarf við 26 frábæra viðskiptavini. Þessir aðilar spanna öll svið samfélagsins, frá stórum hluta fjármálageirans til lykilaðila í orku- og heilbrigðisgeiranum - og nú Alþingi Íslendinga.
Það að leiðandi fyrirtæki og stofnanir nýti fremstu aðferðir í forvirkum netöryggisaðgerðum, bregðist ekki bara við árásum heldur komi í veg fyrir þær, er til fyrirmyndar. Við erum ánægð með að vera treyst fyrir því að vernda það sem skiptir mestu máli í okkar sítengda stafræna samfélagi.
Aðrar fréttir
Sjá allar fréttirDefend Iceland gerir samning við Origo til að efla netöryggi
Við hjá Defend Iceland erum stolt af því að taka höndum saman við Origo til að efla netöryggi kerfa þeirra. Netárásir, sem nýta veikleika í hugbúnaði, halda áfram að aukast verulega. Það er mikilvægt að finna þessa veikleika áður en árásarmenn gera það – því í stafræna heimi okkar er heilsa alls vistkerfis hugbúnaðarins nauðsynleg til að halda nauðsynlegri þjónustu gangandi.
Lesa meiraErindi Tedda á netöryggisráðstefnu Fjarskiptastofu
Í dag var Fjarskiptastofa/ECOI með netöryggisráðstefnu þar sem Theódór Ragnar Gíslason, framkvæmdastjóri okkar og stofnandi, var með erindi þar sem hann varpaði fram eftirfarandi spurningu: Erum við einum veikleika frá game over? Hvaða veikleiki væri svo krítískur á birgðahliðinni að það hefði gríðarleg áhrif ekki aðeins á fyrirtækið þitt heldur líka á samfélagið okkar?
Lesa meiraPallborð á málþingi Rannís - Vegferð styrkjaumsókna og ráð frá þátttakendum
Hörn Valdimarsdóttir frá Defend Iceland sat í pallborði á málþingi Rannís á dögunum þar sem umræðuefnið var „Vegferð styrkjaumsókna og ráð frá þátttakendum”.
Lesa meiraAlþjóðlegur dagur heiðarlegra hakkara
Í dag fögnum við alþjóðadegi heiðarlegra hakkara / International Day of Ethical Hackers!
Lesa meiraDrupalCon Europe 2024
Við erum spennt að segja frá því að stofnandi okkar og framkvæmdastjóri, Theódór Ragnar Gíslason, flutti hvetjandi erindi á hinni virtu ráðstefnu, DrupalCon Europe sem haldin var í Barcelona í ár. Þar lagði Teddi áherslu á framtíðarsýn og vegferð Defend Iceland!
Lesa meiraSjúkratryggingar Íslands og Defend Iceland gera samning um aukið netöryggi
Það gleður okkur að kynna samstarf milli Defend Iceland og Sjúkratrygginga Íslands að auknu netöryggi lýðheilsugagna Íslands!
Lesa meira