
404 Villa Happy Hour Fannst ekki!
Defend Iceland býður í Happy Hour með netöryggis- og varnarmála ívafi í samstarfi við miðstöð stafrænnar nýsköpunar (EDIH-IS) og Rannís. Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga en skráning er nauðsynleg.
Hvað er betra en að fá sér frískandi drykk eftir vinnu og hlusta á eldheitar umræður um öryggis- og varnarmál? Með viðburðinum langar okkur að vekja bæði athygli og umræðu á nauðsynlegri nýsköpun, þéttara samstarfi og gagnsæi þegar kemur að varnarmálum Íslands, þá sérstaklega netöryggi. Markmiðið er að eiga góða stund saman og við lofum góðum umræðum.
Defend Iceland býður upp á fordrykk á meðan birgðir endast svo verða sérstök tilboð á barnum.
Dagskrá
- 16:00 - Hús opnar, fordrykkur í boði Defend Iceland
- 16:30 - Dagskrá hefst
- 16:45 - Panelumræður: Ávallt viðbúin, aldrei tilbúin. Hvernig verjum við stafræn landamæri Íslands?
- 17:30 - Happy Hour
Pallborðsþátttakendur eru:
- Guðmundur Arnar Sigmundsson, forstöðumaður netöryggissveitarinnar (CERTIS)
- Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur
- Gyða Bjarkadóttir, Defender hjá Defend Iceland
- Bæring Logason, Upplýsingaöryggisstjóri (CISO) hjá ISAVIA
- Pallborðsstjórnandi: Sóley Kaldal, áhættustýringar- & öryggisverkfræðingur og sérfræðingur á skrifstofu auðlinda hjá Atvinnuvegaráðuneytinu
Skráning fer fram hér: https://defendiceland.is/happy-hour-skraning/
Hlökkum til að sjá þig!
Defend Iceland teymið