Spennandi áfangi hjá Defend Iceland

Við fórum í loftið í febrúar á þessu ári og erum stolt af því að vera komin í samstarf við 26 frábæra viðskiptavini. Þessir aðilar spanna öll svið samfélagsins, frá stórum hluta fjármálageirans til lykilaðila í orku- og heilbrigðisgeiranum - og nú Alþingi Íslendinga.
Það að leiðandi fyrirtæki og stofnanir nýti fremstu aðferðir í forvirkum netöryggisaðgerðum, bregðist ekki bara við árásum heldur komi í veg fyrir þær, er til fyrirmyndar. Við erum ánægð með að vera treyst fyrir því að vernda það sem skiptir mestu máli í okkar sítengda stafræna samfélagi.

































