Pallborð á málþingi Rannís - Vegferð styrkjaumsókna og ráð frá þátttakendum

Hörn Valdimarsdóttir frá Defend Iceland sat í pallborði á málþingi Rannís á dögunum þar sem umræðuefnið var „Vegferð styrkjaumsókna og ráð frá þátttakendum”. Málþingið var einskonar stöðutaka á árangri Íslands á fyrstu þremur árum rammaáætlunar og vettvangur þar sem þátttakendur og mögulegir umsækjendur um rammáætlanir gátu borið saman bækur sínar og kynnst. Styrkurinn sem við fengum frá Rannís hefur sannarlega gert vegferð okkar auðveldari og er meðal þess sem varð til þess að hugmyndin um öruggara stafrænt Ísland gat orðið að veruleika!
Takk Rannís - The Icelandic Centre for Research (opnast í nýjum glugga) fyrir mikilvægt starf og framlag ykkar til nýsköpunar!

































